Alparósir
Alparósir eru einnig kallaðar lyngrósir og róslyng, en í Nátthaga höldum við fast í gamla, ljóðræna,
hljómfagra nafnið alparósir, sem svo oft er lofsungið í ljóðum og skáldskap!
Eigandi Nátthaga Garðplöntustöðvar, Ólafur Sturla Njálsson, hefur í áraraðir flutt inn og prófað hundruð alparósa í garði sínum.
Í Nátthaga fá þær ekkert sérstakt vetrarskýli, en eru staðsettar í skjólgóðum bollum, við brekkufót í skjóli fyrir verstu norðanáttum eða innan um annan gróður sem skýlir þeim. En fyrir hinn almenna garðeiganda mælir Ólafur með strigaskýli í kringum hverja alparós, eða kringum hvert alparósabeð, þannig að striginn nái að minnsta kosti hálfan meter uppfyrir alparósina. Betra er að hafa opið upp, frekar en að loka alveg. Það er betra að byrja á að kynnast ræktun alparósa með því að byrja á þennan hátt. Seinna með meiri reynslu, finnur maður hvar er nógu gott skjól að ekki þurfi að setja upp sérstakt vetrarskýli, t.d. í mjög skjólgóðum og lokuðum garði, þar sem lítil hætta er á að norðanþurrkandi vetrarvindar næði um þær óheft.
NB! Eftir margra ára ræktun alparósa, alveg síðan 1972, er orðið dagsljóst fyrir Ólafi, að algjör óþarfi er að sýra jarðveg fyrir alparósir við íslenskar aðstæður!!! Margra ára ræktun í venjulegri blandaðri garðmold sýnir að þær þrífast best og lifa lengst í venjulegum jarðvegi sem hentar flestum garðplöntum og trjám. Að sýra jarðveginn og nota mikinn áburð hefur ansi oft frekar drepið alparósir frekar en að hjálpa þeim á Íslandi og í Norður-Noregi líka! Hin gullna regla, "minna er betra" á vel við um alparósir sem eru mjög nægjusamar í eðli sínu.
!!! Það er SKJÓLIÐ fyrir vetrarnæðingum sem þarf að vera MJÖG gott, svo að alparósaræktun lukkist vel !!!
Neðangreind alparósayrki og tegundir eru í eðli sínu mjög harðgerðar, svo fremi sem ræktunarstaður býður upp á gott skjól.
| Rhododendron = Rh: | Blómlitur: | Stærð runnans: |
Hreinar tegundir: |
+ | + |
| Rh. bureavii (blaðhæring er mesta skrautið!) | Ljósbleik til hvít | Miðlungsstór |
| Rh. hirsutum (fíngerð blöð og greinar) (hjallalyngrós) | Bleikur | Lágvaxin |
| Rh. roxianum (sérkennileg mjólensulaga blöð) | Hvítur | Miðlungsstór |
Yrki: |
+ | + |
| 'Baden-Baden' (Rh. repens 'Baden-Baden') | Sterkrauður | Lágvaxin |
| 'Cunningham's White' (góð fyrir byrjendur) | Pastellhvítur | Miðlungsstór |
| 'Flava' (Rh. yakushimanum 'Flava') | Gulur | Miðlungsstór |
| 'Gartendirektör Glocker' (Rh. williamsinanum 'Gartnerdirektör Glocker') | Dökkbleikur | Miðlungsstór |
| 'Hydon Velvet' (Rh. bureavii 'Hydon Velvet) | Hvítur | Miðlungsstór |
| 'Jackwill' (Rh. williamsianum 'Jackwill') | Ljósbleikur | Lágvaxin |
| 'Koichiro Wada' (Rh. yakushimanum 'Koichiro Wada') | Bleikur - hvítur | Lágvaxin |
| 'Lampion' (Rh. yakushimanum 'Lampion') | Skærbleikur | Lágvaxin |
| 'Mörk' (Rh. hirsutum 'Mörk') (Hjallalyngrós) | Sterkbleikur | Lágvaxin |
| 'Polarnacht' (Rh. yakushimanum 'Polarnacht' | Rauðfjólublár | Stór |
| 'Scintillation' (Rh. catawbiense 'Scintillation') (stór blóm og stór blöð) | Ljósbleikur | Stór |
| 'Simona' (stór blöð og stór blóm) | Ljósbleikur-hvítur | Stór |
Tré Skrautrunnar Limgerðisplöntur Skógarplöntur Berjarunnar / Ávaxtatré Klifurplöntur
Alparósir / Lyngrósir Krútt-runnar Rósir